þriðjudagur, maí 27, 2008


Punktur, punktur, komma strik.


Mig vantar lím til að baða heilavitið á mér uppúr. Ég stend sjálfa mig að því að muna ekki neitt stundinni lengur. Vandræðalegt.

Vinnan mín er sú besta.

Umræddur Kambódískur faðir hlýtur að vera eitthvað annað og meira en heimskur. Það er engin svo heimskur að halda að það sé hægt að blása barn upp með því að stinga einhverju apparati uppí endaþarminn á því og pumpa. Mér þykir afar dapurlegt að ekkert annað en heimska komi fram sem skýring "fíflagangi" þessa föðurs. Brjálað flipp.

Það er gott að hjóla, og ódýrt líka. Representing DB-ESS. Jess.

Birkir Kári var skírður á sunnudaginn. Ég mætti í crocs í skírnina. Vonandi í fyrsta og síðasta skiptið sem sá skófatnaður verður borinn í kirkju.

Sumarið er komið. Ég hljóla í vinnuna kl. hálf fimm á daginn.. sólin skín og lil er léttklædd. Heim klukkan hálf ellefu sólin farin að sofa og lil ennþá jafn léttklædd. Hor og hósti í verðlaun.

Fríða pregg og Humi egg er komin í bæinn. Þau eru hjón. Með unga í ofninum. Vei. Heyrst hefur að kótelettu forði fjarðarins sé fjarri góðu gamni. Hann á að hafa horfið sporlaust síðasta laugardagskvöld. Grunsamlegt. Helga er líka stúdent.

Ég elska sumarið og ilminn af nýsleggnu grasi. Það voru allir að slá í dag. Allir. Þessvegna kom ég ekki heim úr göngutúr fyrr en eftir tvo tíma. Unaðslegt.

Ég ætla að vaka fram yfir miðnætti og anda að mér bjartri nóttu. Ég elska sumarið.

Lilja mín er með tónleika á morgun, vild'ég gæti heyrt og séð.

Killer Joe er geðsjúk sýning. Á allan hátt. Geðsýkislega vel gerð og gegnsýrð af trylltri geðveiki.

Byggðavegur án ömmu er eins og api án banana.