miðvikudagur, apríl 16, 2008

Þegar ég segji speki..


Það gekk upp að mér sauðkind. Sú var gapandi. Jarmandi. Öll í hlandi. Hún meig á sig. Óheppin.

Eitt er það í veröldinni sem ég elska. Ekki bara eitt og eingöngu eitt.. heldur eitt af grúppu. Það er laukur. Ég vakna á hverjum degi og bít í hráan lauk. Svo bít ég aftur í sama laukinn að kvöldi dags. Fyrsta sem ég hugsa um þegar ég vakna á morgnanna og það síðasta sem ég hugsa um áður en ég fer að sofa. Sönn ást.

Svo er ég með brennimerktan bingóvöðva. Heppin.

Sannleikurinn er sá, að það lekur smjör af hverju strái.