miðvikudagur, mars 19, 2008

Skotin í tilverunni




Kryddstelpurnar sannfærðust um vinskap sinn og nánd þegar Mel B skvetti á þær hlandi. Athyglisvert.

Ég gekk inn í undraveröld fyrir ekki svo löngu. Ég leit inní hana og sá fegurð og frískleika.. elsku Valdís, orðin svo myndarlega ófrísk (er einhver að tala á móti sjálfri sér í þessari setningu eller hur?). Heimilið svo hreiðurslegt og tilbúið fyrir storkinn og gjöfina sem hann gefur. Fallegt. Fallegt fólk. Ég spurði hvort það væri búið að ákveða nafn, við ræddum í framhaldi af því hvað það væri fáránlegt að maður hefði völd til þess að skikka einhverja manneskju til að heita einhverju alla ævi. En ætli maður sé ekki traustsins verður. Ég er allavega sáttari en sátt við foreldra mína fyrir nafngiftina.

Lokaverkefnið er komið vel á veg og ég er búin að eignast nýja vini niðrá Plastás. Brjóstin mín eru orðin stór og stæðileg með fyllingu sem mótast að líkama þess sem upp að þeim kúrir. Það var svo gott að liggja í þeim um daginn að ég steinsofnaði og svaf í tvo klukkutíma. Eftir lúrinn fór ég uppá þak og naut þess að eiga heiminn.. svo leyfði ég heiminum í smástund að eiga mig. Sátt í okkar sambandi drógum við andann blíðlega og brostum framan í hvort annað.

Það er svo gott að vera til.