Jeeeebabba
Handahlaup á túni. Það liggur við ég múni. Hopp og hí, trallalí, uppá nefið nú ég sný! Hver var ekki orðin pirraður á þessari línu í afa. Kanski enginn, og ekki ég neitt sérstaklega. En ég er það núna.
Ég er uppgefin. 12 tíma vakt tekur sinn toll af manni.
Gaman þótti mér í síðustu viku hvað það voru margir sem hugsuðu til mín þegar þeir lásu um Gyðjubrjóstin í Fréttablaðinu, eða sáu þau í sjónvarpinu. Sumir meira að segja klipptu út greinina fyrir mig. Vissulega góð hugmynd með gyðjubrjóstin.. og ég vona að þau hafi selst upp fyrir milljónþúsundkrónur. Ég vona líka að fiðrildavikan hafi snert fólk um víðan völl og leiði af sér vakningu vitundar. Ég vona að hún leiði af sér eitthvað gott fyrir þreklaus fiðrildi með laskaða vængi og votar kinnar. Ég vona að heimurinn verði mýkri og betri með tíð og tíma. Ég vona að þér líði vel.

<< Home