miðvikudagur, febrúar 20, 2008

Með sesamfræ í hárinu

Tryllt gaman í skólanum í dag.. vei! Kanski ég komist á vúbbvúbb metnaðarbragðið aftur.. upp með smjörið og áfram með fjörið! Ég gæti alveg sagt kokhraust að þessi önn hafi farið jafn vel af stað og haustönnin. En ekki með góðri samvisku, ó nei Sóley! Nú stendur það til bóta.. Lýgi lýgi lýgi.. lætur bætur í hnéspætur. Og hana nú.

Hver gróðursetti blómkál í hálsinum á mér? Sá hinn sami er vinsamlegast beðinn um að fjarlægja það eins og skot. Hvimmleiður fjandi.

Mig langar dálítið til þess að klæða mig í gulan kjól, vippa mér uppá rauða dbs fákinn. Lofa vindinum að leika um hár mitt og hörund.. þar sem ég hjóla leið mína í gegnum stórborg og stræti. Enda ferðalagið í fallegum garði með tjörn fyrir honum miðjum. Breiði úr teppi, berfætt og fæ umsvifalaust grasgrænu á iljarnar. Nýt þess að að kela við sólina og segja henni dagdrauma liðinna daga.. drauma sem fela þá ókomnu í sér.

Ef mér skjátlast ekki, þá er ég rétt að merja það sem ég stefndi að hér í byrjun mánaðar. Ég byrjaði af krafti að blása og mása og blása mig hása.. hélt svo áfram og blés mig til hlés.. og hvahh! Viti menn.. febrúar er langt kominn, ég held ótrauð áfram og blæs hann í burtu!

Vorið.. vorið.. konungsborið.. komdu núna komdu fljótt. Brosandi, hoppandi með gleðignógt!