þriðjudagur, febrúar 19, 2008

Eins og múkki..

Reykjavíkin hefur mér aldrei fundist jafn heillandi og núna. Þó veðrið sé vont og gluggarnir ýlfri þá er samt sætur angann í loftinu. Sólveig fær 5 stjörnur fyrir gestrisni sína, umhyggjusemi og persónutöfra. Takk.

Á fimmtudagskvöldi hins títtnefnda Valentínusardags hittumst við 8 stelpur, elduðum ómótstæðilegan mat, sprengdum hjartalaga blöðrur með steikarhníf og fórum berar að ofan í heitapottinn. Allt í nafni feminismans náttúrulega.. Jájá.. Bryndís fær klárlega kredit fyrir hetjulegustu innkomuna og Elfa fyrir að takast það sem hún ætlaði sér. Splasssh!

Ástmaðurinn yndislegi kyssti mig í rúllustiganum í ikea. Já og svo margt fleira gott + glóðurauga og kúkmokstur. Vandræðalega leiðinlegt að vakna einsömul á morgnanna.

Veiknefis sýkilthroatson kaffærði mig strax í gærmorgun. Fjandsamlegt þetta vetrar kvef alltaf og endalaust.. þá sérstaklega þegar manni slær niður. Þá er gott að eiga góða ömmu sem eldar rauðmaga og rauðmagasúpu fyrir mann í hádegismat og dælir í mann sólhatti og vítamínum. Ég veit hreinlega ekki hvar ég væri án hennar.

Sven saknast