Brjóst
Ég fann þessa mynd á netinu. Hún vakti þá tilfinningu innra með mér sem ég er að vinna með í lokaverkefninu mínu. Hrein og falleg tilfinning sem vaknar alltaf þegar ég hugsa til baka í bernskuna og minnist þess hve móðurbrjóstið er mjúkt og hlýtt.
Blazej Mikula tók myndina.

Næringarsekkur og tilvalinn púði fyrir lítil höfuð að leggja sig á.
Annars er ég lasin heima og prjónandi í dag. Sakna sunnanvindsins sem leikur við hárið á mér. Sé liti þegar ég loka augunum og dreymir um að renna mér berrössuð á regnboganum. Horfi á eldhúsrúðurnar og sé andlit sem hlægja og brosa. Snjórinn bjó þau til í nótt og ég nýt þeirra í dag. Nýt þess líka að vera inni með te í bolla, opið fyrir rás 1 og hlýjan lopann í kjöltunni.
Bolludagur á mánudaginn, jaaaahaaaáú!!
Ástarfundur á fimmtudaginn, vehei!


<< Home