Rakaður niður í rót
Svo skín í beran skallann
Svo skín í beran skallann
Tíminn tifar.. með taktföstum, grípandi, reglubundnum, heimilislegum, og umhyggjusömum hætti. Tíminn leiðir hlutina í ljós.. læðir birtu hér og þar, sáldrar rökkri yfir úfinn koll og dregur fyrir gluggann á meðan þú háttar. Hann dansar við þig þegar þú dansar við hann, les yfir þér ef þér líður þannig og lætur hjartað slá örar ef þér finnst þú missa taktinn við sekúndurnar sem líða áfram sama hvað hver segir. Tíminn stendur aldrei í stað nema höfuðaflið hefi sig yfir æðrimáttarvöld með rigninguna uppí nefið. En tíminn stendur staðfastur á sínu og veit hvert hann ætlar.. hann streymir meðan múkkinn syndir eins og laxarnir í ánum.. þakka ég fyrir þe'r hann kitlar mig á tánum. Flæði flæði laus við mæði.. skynja skæli hjartslátt mæli. Hátt til lofts og hamingjan, hangir, dólar.. frumstætt gólar. Gefur grisju við samtímaklisju. Lof mér að líða, dansa og dóla, svífa og sefa.. án þess að slefa.
Jafnfætis á einumfæti með hálsfesti í eyranu og sykursnúð í nefinu. Nýtt smjör. Góður tími.
Hver hlóð grjóti á augnlokin á mér. Ólafur Lokbrá, í fjöru ég finn þig.
Jafnfætis á einumfæti með hálsfesti í eyranu og sykursnúð í nefinu. Nýtt smjör. Góður tími.
Hver hlóð grjóti á augnlokin á mér. Ólafur Lokbrá, í fjöru ég finn þig.


<< Home