9 volta sparpera
Í gær tróð ég fætinum á mér milli rimla í Ketilhúsinu. Ég fékk marblett.
Í dag spurðu 3 manneskjur mig hvort ég hafi saumað peysuna sem ég er í. Það gerði ég ekki.
Í þrjá daga hefur mér fundist eins og sé verið að landa skipi í höfðinu á mér. Sumir segja hellur. Ég segji Tinnitus
Hvort það sé eitthvað samhengi þarna á milli er kannski ekki gott að segja til um.. en fyrir mér er það augljóst. Peysan er fjólublá, hnéð á mér líka og það veit alþjóð að skip hafa löngum verið talin með fjólubláa sál.
Yndi sem mér finnst það og unaður hvað allir dagar eru ólíkir. Hvað smáatriðin gleðja mikið.. nú er ég ekki að tala í samhengi því skipið og marbletturinn eru ekki titluð sem gleðileg smáatriði. Saga af ketti, innihaldsríkt bros frá búkarli, Barbapabbi, einlægt þjónustufólk, bumba útí heimi, prjónaður brúðarkjóll, birta og vorlykt.. bætir og kætir.. og skipið gleymist.

<< Home