Heppinn hamstur
Á sama einlæga hátt og manni finnst maður ekki geta átt betri foreldra þegar maður er lítill, mamma og pabbi ómissandi stoð í tilverunni reyndar er ég ennþá pínulítil ef ég ætla að taka þennan pólinn. En á þennan sama hátt veit ég að ég gæti ekki átt betri vini. Ekkert er betra en fallega og vel innrætt fólk. Það er ekki gefið að vera svona heppin. Mér var gefið að vera bæði heppin og væmin. Vei! Takk fyrir tryllt yndislega daga á Eggertsgötunni, í Baldursgati og útum allt og allstaðar. Hamingjan sanna hvað það er gott að vera berfætt, binda upp hárið, grilla og brosa upp í sólina. Innileg hlýja í maga, höfði og brjósti.


<< Home