þriðjudagur, apríl 08, 2008

Þreytt

9 tímar yfir sömu 7, A3 blöðunum, brjóstunum, einlægninni, berskjölduðu sjálfinu, mér.
- Úrvinda að kvöldi dags -
kemur skúringakonan mér til að gráta.

Tárum sem áttu skilið að líta dagsins ljós og renna sér bjartsýn niður kinnarnar eins og lítið barn í rennibraut.
Getin af gullhömrum sem ég þurfti svo mikið á að halda.