laugardagur, apríl 19, 2008

Dagurinn í dag bauð mér uppá


Að sjá gleði við minnsta tilefni. Að upplifa óeigingjarna ást. Að fá faðmlag og geta notið þess með öllum vitum.

Að anda að mér sólinn. Að finna lyktina af vindinum. Að klæða hugann úr. Að ljóma með lífinu í kringum mig. Að geta treyst á eigin kropp.

Að fara í bað að kvöldi, svamla, sulla, skola sápuna úr hárinu og deila að lokum vætunni með hreinu, hvítu handklæði. Hrein. Með hreinan þvott úti. Plokka hann niður við fuglasöng og stinga nefinu á bólakaf ofan í lökin. Fylla “mmmmhhvaðútilykteryndisleg” tankinn.. draga djúpt andann og finna fyrir barminum, sneisafullum af sál.

Að sjá fallegustu skuggamynd í veröldinni leggjast og hvíla lúin bein að kvöldi dags. Sólríks dags sem sagðist vera úrdráttur áratuga.