þriðjudagur, maí 13, 2008

Adeins eitthvad svolítid


Ég er í Borås. Alltaf gott ad byrja blogg á ég. Ég kom í gaer, med lest frá Skåne. Tá tegar búin ad eyda tremur dögum i den dejlige Danmark. Frelsid er svo sterkt tarna tegar madur er berfaettur í sólskini, sandölum og á hjóli. Den sorte skole, nikkuspilid, islands brygge, nyhavn, braudid sem bordad var sídast, Klovnens Bodega og tröppurnar trilljón, laumudu sér í farteskid sem gott nesti út í sumarid.




Átti yndislega helgi í fadmi Bralla og teirra barna. Sólin sveipadi gylltum bjarma yfir allt og alla og gerir tad reyndar enn. Einn daginn ad teikna hún af mikilli alúd nokkrar freknur framan í mig. Í ruggustól á pallinum, med hvítvínsglas og jardaber, á bikiníi, med augad í pung, raeddum vid um allt sem skiptir máli.. fram og til baka.. med hléi ödru hvoru til ad daesa yfir tví hvad lífid sé fallegt og notalegt.





Vid fleyttum kerlingar og röbbudum um graent slím. Veltum fyrir okkur hvernig gaurarnir á steinöld hefdu farid ad tví ad "tálga" steina á spjótin sín. Lýstum yfir áhuga okkar á steinöld en tókum tad skýrt fram ad tad vaeri til meiri áhugi fyrir framtídinni. Dramatísk horfdum uppí himininn og dreymin blésum vid bifukollur naktar.










Í lestinni sá ég landid lída hjá og las um líkamslistir og hugarvíli í hryllingsleikhúsi vid Álafoss. Bubbi Morthens sagdi ad bókin hafi komid sér meira á óvart en lífid sjálft. Verd ad játa ad bókin er vissulega studandi. Tó er ég ekki búin. En ef ég á ad segja eins og er tá vona ég ad líf mitt verdi magnadara en bókin og ad Bubbi hafi enn einu sinni tekid sér stór stór ord í munn.

Tad veltur margt á morgundeginum. En ég reyni ad hugsa sem minnst um tad.

Á eftir.. fyrirlestur um mism. prjónaadferdir. Spännande.