Undur veraldar
Ég hljóp ekki, ég tók sprettinn uppá fæðingardeild eftir kvöldmat. Fannst eins og ótal furðulegar tilfinningar væru á flugi innra með mér á leiðinni. Kannski af því að ég er ekkert vitlaus. Ég vissi hvað ég ætti í vændum og var svo ótrúlega spennt. Það vottaði heldur ekki fyrir vonbrigðum þegar ég gægðist inn í undraveröldina. Stofa 4 var orðin vagga. Hún geymdi gull. Gersemirnar geisluðu og mér vöknaði um augun. Snáðinn litli fallegri en allt. Með agnarsmáa fingur sem dönsuðu við loftið og draumana sem í því sveimuðu. Valdís og Helgi - Mamma og pabbi.

<< Home