mánudagur, apríl 28, 2008

Sýnishorn - Horn til sýnis


- Ljóð á vegg -

Ég man þegar ég var:

Alveg búin.
Geispinn náði niðrí tá.
Ó, svo lúin.
Mömmu brjóstið lagðist á.

Lítil snúin.
Í sælu sofnaði þá.

Mýkt, hlýja, ást og öryggi. Vernd.
Móðurást mótuð með textíl.

Hjúfraðu þig upp að brjóstinu,

Það faðmar þig.



- Innsetningarverk -










Gísli Dúa á þessa neðstu. Trilljón takk.


Tvö hrúgöld - Brjóst sem báru umhyggju - og - Sjö þæfð ullarljós - Brjóst sem báru birtu. Útsaumsmynd - sjálfstætt verk - Móðir og barn.

Sýningarhelgin er liðin, ljúflega hjá. Takk til allra sem lögðu leið sína í Ketilhúsið, tvö takk til þeirra sem tóku þátt í verkinu og hjúfruðu sig, þrjú takk fyrir blómin og sérstakt glimmertakk til Hödda frænda. Takk til pabba fyrir að vera með hlýjan föðurlegan barm og mamma fær takk fyrir brjóstin bestu. Það er ótrúlegt hvað það gefur manni mikið að fólk sýni því áhuga sem maður er að fást við. Það gefur gull í hjartað. Takk og takk og takk fyrir gullið.