miðvikudagur, apríl 23, 2008

Despereisjon and rívens

Var að koma úr Ketilhúsinu. Ótrúlega gaman að sjá verkin uppá vegg eða útá gólfi. Sýningin verður virkilega fjölbreytt. 16 krakkar, allir með sinn karakter og sínar meiningar. Stórskemmtilegt. Þórhallur Ragnarsson rafmagnsmeistari á heiður skilið fyrir að vera hinn vænsti maður og einstaklega hjálpsamur. Hann er búinn að hjálpa mér að græja ljósin þannig að það kvikni á þeim. Sem er hreinlega meira en að segja það fyrir rafmagnsþrolla á borð við mig. Nettur taugastrekkingur í dag þegar ég var búin að leita milljón hringi allstaðar, að tveimur hvítum ullarfilts vængjum sem áttu að sameinast þrem í viðbót og gegna lykilhlutverki í öllu brjóstapússlinu.. var að verða úrkula vonar um að finna þetta. Brenni heim á Svenson og kem að ömmu með eitthvað mikið hvítt í kjöltunni og skæri í höndunum. Svipurinn var víst óborganlegur og hjartað lét svo sannarlega vita af sér í buxunum. Hvernig mér datt það í hug að amma væri að fara að spretta upp verkefninu mínu í einum rykk veit ég ekki. En ég var greinilega orðin gegnsýrð af örvæntingu og farin að búast við hinu versta. Amma mús var í sakleysi sínu að endurhanna stórt teygjulak.

Bíllinn "minn" Svenson var skolaður í gær. Mætti jafnvel segja að hann hafi verið orðinn haugadrullugur. Svo slæmur að amma var farin að biðja mig að leggja honum fyrir framan önnur hús. Mér leið mikið vel með verkið.. enda vel unnið í alla staði. Hreinn bíll, halelúja! Hvað mætti mér í morgun? Jú mávur, sá leit á mig illum augum, sneri svo rassinum í mig. Flaug hann af stað og dritaði vænni ræpu á bílstjórahurðina. Þakka þér fyrir! Ég öskraði og hljóp á eftir honum, greip rauðan kúst á leiðinni.. tók flugið, hærra en ódámurinn og droppaði vænum á hægri vænginn á honum. Feis.