miðvikudagur, maí 07, 2008

Mig dreymdi í nótt..

Að mig klæjaði tryllt í hökuna, leit í spegil og þá var ég með sótsvartan fílapensil. Ég kreysti hann og úr kom mýfluga sem flaug í burtu. Ógeð. Með pödduflugu í húðinni. Hvað ætli það tákni?

Ég er í Köben. Það er sól og hiti.