Senn á enda runnin er, fagur maí í lúkum þér.
Mmmmha.. að vera í fríi eða vera ekki í fríi. Það er sumarið.
Virkilega gott að koma niður til Nóra. Veskið þynnra en Bogi og Örvar á sunnudagsmorgni, Klovn búinn í tívíinu og afþreyingarefni Rúv af skornum skammti.. súkkulaði kreeeeivin á hæsta stigi. Nóri lánar sjónvarpsflakkara og bíður uppá machintosh, síðan um jólin. Virkilega gott. Machintosið var klárað.
Hive heimilissímar í Noregi, voipcheap og skype. Hvílíkir gleðigjafar. Og Helúsinn kemur heim eftir 2 vikur. VEI!
Alheimsfrumsýning í kvöld. Háir hælar og glimmer.
Eggjalausar vöfflur og chicago town. Uppistaðan í fæðu fimmtudagsins.. veit ekki alveg með það. Bumbus og ekkert barn.
Ég og bumbus sátum útá svölum á miðvikudaginn þegar sólin var sem hæst á lofti. Tætarinn fullkomnaði teimið og vann vinnu sína vel. Öll hár sem hann komst í fengu að fjúka. Við þessa iðju mína sat ég útá svölum í hvítum plaststól, afskaplega niðursokkin. Lýk verkinu og uppgötva að ég lít út eins og sebrahestur. Soltið erfitt fyrir sólina að skína ofan í alla firði og dali maga míns. Damn you bumbus!
Eins gott það verði sól um helgina því það verða sett niður sumarblóm á Byggðavegi 114. Garðurinn verður sleginn og lóðin verður vökvuð. Einfalt mál. Stofublómin eru enn á lífi. Þau sem fengu að njóta vafans og vera eftir. Hin varðar mig ekkert um, enda ekki í minni vörslu.
Ein kenning sem kviknaði. Hef mikið pælt í því af hverju það fyrirfinnast ekki þessi fagurlituðu fiðrildi hérna á Íslandi. Þessi hvítu og gulu og marglitu. Ég held, og gæti trúað því að það stafi af því að þau taka sér öll sem eitt bólfestu í maga mínum á ári hverju. Um leið og það byrjar að vora. Svo þykir þeim dvölin svo góð að þau fara hvergi. Heldur eru bara, allt sumarið. Öll sumur. Verst er að sjá þau aldrei, en gott að vita af þeim.
Þetta er eitthvað sem allir verða að sjá:


<< Home