Lokbrá hintar um hádegismat
Ég sofnaði klukkan hálf átta í gærkvöldi og vaknaði klukkan tíu í morgun. Hvað ég hef gert til að vinna mér inn þreytu sem réttlætir þennan ultra svefn veit ég ekki. En allavega er ég gott betur en úthvíld. Ooog á frí í dag. Húrra!
Ef einhvern skortir hugmyndaflug fyrir hádegismat, mat milli mála eða desert eftir kvöldmat þá mæli ég með því að slengja svolitlu af hindberjaskyri hægramegin í skál og svo dassi af vanillu skyri hinumegin. Mmmh. Minnir á röndótta ísinn í Danmörku. Ef maður vill ganga alla leið í því, er hægt að grípa bananasplitsúkkulaðiskyrið og gera nettan prikant, en það er vont svo ég segji nei. Bleikt og hvít.. ljúfengt!


<< Home