Gakk
Ég stóð á miðri brúnni og sá ánna fossa niður beitt gljúfrið, í gegnum rifurnar.
Brúin bar mig yfir með berum höndum,
ég stoppaði eitt andartak þegar ég var komin mín megin við ána,
horfði á værðina sem lá yfir lóninu.
Lygnt.
Sólin var í þann mund að bjóða góða nótt.
Hún glitraði svo fallega á vatninu að ég fékk stjörnur í augun.
Andaði djúpt og ákvað að mig langaði til að eiga þetta andartak inní mér alltaf.
Mig langaði til að setjast niður og horfa.
En ég ákvað að halda áfram.
Fann hvernig loftið fyllti lungun.
Gekk rólega, af gæsku við tær og huga.
Færði mig nær brúnni sem bar umferðina yfir höfði mér.
Mig langaði til þess að setjast í skuggann og gráta.
En ég ákvað að halda áfram.
Ég kom undan brúnni,
úr myrkrinu í sólskinið og fann hvernig kinnin mín hægri roðnaði.
Ég leit á brekkuna sem sat kæruleysislega við hliðina á stígnum,
þeim sem fæturnir höfðu eignað sér eina örlitla stund.
Mig langaði til að leggjast í grasið og tala við skýjin langt fram á nótt.
En ég ákvað að halda áfram.
Ég hélt áfram og ég hélt áfram og áfram
og áfram,
alveg þangað til ég kom heim.
Þá var ég heima.


<< Home