þriðjudagur, júlí 29, 2008


Súludans


Garpurinn greip um mig miðja í dag og bauð mér uppí dans. Ég gat ekki neitað, enda vel upp alin. Saman príluðum við uppá Súlur. Þvílík sæla sem náttúran ber á borð fyrir mann þegar manni hugnast að koma í heimsókn. Myndirnar segja meira en mörg orð. Augnabliks myndir sem fönguðu hugsanir sem streymdu í óstöðvandi flæði. Súrefnið var af bestu gerð og ófáanlegt annarsstaðar með sama gæðastimpil. Sannkallað delí súrefni. Ég var ein en þó ekki alein. Dagurinn var frábær og í kvöld er ég þreytt.




Ytri-Súlur

Syðri-Súlur