laugardagur, júlí 12, 2008


Dansandi dægurmál


Það er ekki laust við að mig kitli örlítið í magann þessa dagana. Annað væri kannski óeðlilegt, því fólkið mitt kæra er að koma heim eftir árs fjarveru. Húsið verður endurheimt og allir bitar falla á sinn stað. Gámurinn sem faðir minn beið eftir óþarflega lengi gæti verið komin upp að dyrum hér heima. Þó er ég ekki viss, en ef ég beiti raunsæi og rökhyggju þá efast ég um að Bensi standi fyrir honum. Ekki nema hann hafi dílað um að fá sófasettið og marmaraborðið með leiguverðinu mér óafvitandi.

Verst er að ég verð ekki á staðnum þegar þotuliðið mætir á svæðið. Leiðilegt að missa af því, en það verður þá bara þeim mun betra að flögra upp um þau á fimmtudaginn.

Legg í hann á mánudaginn með tvær öðlings píur af sambýlinu, ferðinni er heitið í sumarbústað suður yfir heiðar. Náttúra og hreint loft í lungun, gefandi gunnur og gott nesti. Hvað getur maður beðið um meira? Nada.

Væri annars virkilega til í að fá húsnæði í RVK fljótlega. Mánuður í fluttning og þetta gengur treglega. Spurning um 3 herb. íbúð í 101 - 105 eller 107 ..eitthvað sem ég get búið í og haldið báðum augum. Svaðalegt hvað leigulistinn hefur óhrein áhrif á orðaforðan.

Keypti mér tvær bækur í dag. Önnur heitir Íslenskur útsaumur og hin heitir Frost Activity - Ólafur Elíasson. Ætla að sporðrenna þeim og synda svo sæl inní svefninn, hress á laugardagkvöldi.