föstudagur, júlí 25, 2008



1o punda stolt og karfakinnar í millirétt



Dagarnir líða áfram án þess að þurfa áminningu og áfram með smjörið hvattningu. Sumarið kíkti í heimsókn í gær og öskraði mikið, hvíslaði lítið. Sagðist vera hálfnað þegar ég reyndi í örvæntingu að bæta á kaffið. Sem ég hellti svo yfir sumarblómin að kvöldi dags.

Mér líður eins og eitthvað meira og stærra en Doddi dordingull liggi í loftinu. Eitthvað ótrúlegt sem spinnur sinn vef eins og Doddi. Get lítið útskýrt það nánar. Kannski spiderman?

Ég fór í veiði á mánudaginn. Með þessum líka eðalnáunga. Ef einhver var einhvertíman í vafa þá þarf ég að koma því á hreint hér og nú að pabbi minn er langflottastur. Ég er hógvær. Á Patrolnum lulluðum við austur að Skjálfandafljóti, með kanta á dekkjunum, Sambó lakrís á milli okkar, Pétur Kristjáns í eyrunum, jú og maðka í skottinu. Táruðumst bæði yfir náttúrunni á leiðinni og snýttum okkur í ermar hvors annars. Hittum hið vænsta fólk þegar komið var í hjólhýsið og ætluðum aldrei að sofna um nóttina. Hvort í sínum -40°C svefnpokanum. Á endanum sofnaði ég þó, á undan pabba. Hrökk upp aftur um leið og hann festi blund. Ýtti í hann einu sinni og sá svo að það skilaði engu. Ég reyndi að draga andann um leið og hann og lifa mig inn í tónverkið. Það gekk illa. Hvað varð um hrotutöflurnar sem Mona sagði að virkuðu á Trausta? Ég náði að dorma og dreymdi alla nóttina að það brakaði í klettum allt í kringum mig... Úthvíld klukkan 7 vöknuðum við og fórum í síðbrækur. Ævintýrið var í þann veg að hefjast.

Að veiða á austurbakka-efri er engin lautarferð. Fyrst þarf að róa á báti í góðar 15 mín. Svo gengur maður upp Þingey í um 45 mín, þar til maður rambar á svæðið og þá þarf að koma sér niður á bakkann. Ég prufaði fjóra veiðstaði. Fyrsta var tiltölulega auðvelt að sækja heim. Annan var pínu bras að kom sér á, klöngrast milli stórra steina að aðal steininum svo maður gæti staðið þar eins og spaðadrolla og mátað Fosspollinn að norðan. Þriðja þurfti maður kaðal til að halda sér í á leiðinni niður, samt í meðallagi erfitt miðað við konung tryllingsins.. fjórða. Til að komast þangað þurfti maður virkilega á köðlum að halda. Djúpar gjár og blautt stórgrýti alla leið niður snarbratt gljúfrið. Þetta var harðkjarnakeppnisfullorðins. Ég fór þarna niður á þrjóskunni einni saman. Í ausandi dembu, bússum sem voru 2 númerum of stórar og regnjakka af pabba sem var of síður og hefti tignarlegar mjaðmir mínar í hreyfingum.. með veiðistöngina í annarri og égerenginnfokkinaumingi skrifað í lófann á hinni. Sjitt hvað mér fannst ég svöl þegar ég var komin þarna niður og upp aftur. Veiddi sem betur fer ekkert þarna niðri því það hefði verið ógerningur fyrir mig í bússum nr. 42, jakkanum síða, orðin í lófanum og stöngina og stoltið að halda á einhverjum drelli þarna upp.

Eeeengu að síður.. gerði ég mér lítið fyrir og landaði maríulaxinum. Ein og óstudd. Með áhorfendur. Óttar og Júlía, vænsta fólkið, voru í Barnafelli og fyldust spennt með. Ég lyfti honum 5 punda unglingnum, hátt yfir höfði mér, sigri hrósandi eins og Salómon hennar Stellu. Barði hann svo til óbóta og blóðgaði. Stuttu seinna birtist stóri bróðir hans 10 punda tryllir. Lamdi hann líka og reif hann svo í sundur. Faðir minn var að vonum hýr á brá þegar ég lyfti þeim sigri hrósandi og öskraði yeeeeeeeaaah í áttina til hans þar sem hann stóð hinu meginn við Fosspollinn. Svo dó ég við það að bera þetta upp á eynna. Áttaði mig á því að ég var alblóðug á höndunum og lyktaði eins og súrhvalur. Fannst það eiginlega bara kúl. Pabbi sjálfur veiddi þrjá laxa og einn urriða ræfil, og Gæsi drap fjóra. Þvílíkur endemis snilldar túr.

Þetta blogg er að verða heldur í lengri kantinum en það er alltílagi því ég hef ekki bloggað svo lengi. Ég hlýt að eiga inni einhvern kvóta. Svo á ég örugglega ekki eftir að blogga lengi hvort eð er þannig að maður getur hólfað þetta niður. Tekið fram að fyrstu greinaskilum í kvöld. Næstu annað kvöld og þannig koll af kolli þangað til maður er búinn og þá þarf maður líka að kommenta því ef maður sleppir því er maður fúlegg.. og það vill enginn vera.

Í gær dróg Linda mig með sér í ræktina. Til allrar hamingju. Ég er náttúrulega að vinna í því markvisst hérna í sumar að safna svolitlum vetrarforða fyrir komandi harðindi. Sé fram á að þurfa að betla sláturkeppi og sjóða húsflugur mér til matar. Þó má þetta ekki verða of öfgafullur forði. Því allt er gott í hófi eins og einhver frægur sagði einhvertíma. Nú þetta var í annað skipti í þessari viku sem ég lét lífið og þurfti endurlífgun. Eftir ræktina smelltum við okkur í ljós. Ég er á leið til Svíþjóðar og hef ekki í hyggju að skíttapa fyrir Lisu og Lottu í Sommer-tan 2008 tournament, læt mér nægja að tapa. Við splæstum í eitthvað krem-sull sem stelpan í afgreiðslunni mælti með, til að taka þetta alveg með trompi. Smelltum okkur inn í klefa og upphófst þá mikið stress. Að ná að bera á sig áður en skrímslið færi að lýsa. Ég var ekki nema rétt búin með andlitið, hálsinn, boobies og vinstri hendina þegar ljósin kviknuðu þannig að restin var gerð á einhverju hundavaði. Tók eftir því áður en ég lagðist að mig var farið að svíða ískyggilega í andlitið og titties. Ég sótbölvaði kreminu þá þegar og hlammaði mér í bekkinn. 18 mín liðu.. frekar hægt. Kom út, tékkaði á taninu og viti menn. Ég var eins og lifandi málverk eftir Óla G. Illa útileikin fannst mér ég vera þegar ég sprangaði upp tröppurnar heima á Byggðó, ógeðslega sveitt í ræktarfötunum sem ég fór aftur í eftir ljósin. oj. Kemur amma á móti mér og kveður upp að Anna María og Elfar, mín unaðs au pair hjón hafi verið að reyna að ná á mér. Þau á Akureyri. Ég tók eitt backflipp niður tröppurnar af æsingi og dreif mig svo í sturtu. Kom úr henni, mundi aftur að ég var eins og karfi á vandræðalegu égerímargmenniogmáekkiprumpaengerðiþaðsamtaugnabliki. Rauðari en rautt. Gott að amma temur ekki naut.

Hitti þau svo hálftíma seinna og fór með þeim útí sveit. Átti yndislega litla stund með þeim og kyssti þau á trínin. Ótrúlegt að það séu 3 ár síðan ég var hjá þeim. Ótrúlegt.

Jæææja. Frí á morgun, ekki á laugardaginn. En á sunnudaginn OG mánudaginn. Húrra!

Á morgun verður flaggað og maríulaxinn leggst í minn maga. Hátíðarkvöldverður í Löngumýri 20. Nýjar kartöflur og gourmet gott.

Þvílík losun

Ég elska loro með pinback

..og ég elska hrossagaukinn.

lil