Bert
Mig langar svo að strípa þetta blogg. Hef fengið skyndilega þörf fyrir að strípa hluti. Enda strípur með eindæmum áhugaverðar. Kannski er ég of mikil thinker og heigull til þess, en ég tími ekki að steypa fyrri færslum á glæ. Það væri heldur óglæstur endir. En hér er annars engin að tala um endi. Allavega ekki ég, og ég heyri ekki í neinum öðrum. Sjónlist 2008 er handan við hornið. Akureyri líka. Merkilegt hvað ég er ein án Eyjafjarðar.. og afhjúpuð. Hálf strípuð eitthvað. Nakin.


<< Home