Sophia Hansen
Kóngstaðaferð er yfirvofandi. Amma er búin að baka gulrótarköku, hjónabandssælu, döðluköku, rúgbrauð og sjóða hangikjöt. Ég held hún hafi sest niður í rétt um hálftíma í dag. Til að horfa á Klovn með mér. Við hlógum eins og skessur. Ég er búin að taka tvær aukavaktir að næturlagi síðustu tvær nætur og er á þeirri þriðju,. Skynsamleg ákvörðun akkúrat núna? Ég veit það ekki. Herbergin mín í Byggðaveginum eru rétt í þann mund að skríða ofan í pappakassa. Ég búin að henda öllum vísa yfirlitum frá því síðustu tvö árin, troðfylla þrjá kassa af garni og belgja út fínan tombólupoka. Hvet alla sem vettlingi geta valdið að halda tombólu fyrir einhvern verðugan málstað. Búa til pappaskilti og koma sér fyrir á teppi fyrir utan Hrísalund, með spöng í hári og bros á smetti. Man þegar ég hélt tombólu fyrir Sophiu Hansen í bílskúrnum heima. Þrisvar sinnum. Ég í útkrotuðugifsi, Björk í rokorknarstuði og Eva með freakin fine derhúfu. Eitursvalar á því. Miðinn kostaði tíu krónur.
Að pakka er hundleiðilegt. Að fara er blandið gleði og söknuði, spennu og tilhlökkun með eilitlu kvíðakorni sem lætur fara vel um sig í koju með Bjartsýni Bjarnadóttur.
Við förum á Kóngsstaði á morgun. Eða já, vonandi fer ég með.. ef ég hundskast til að sofa ekki eins og Steinn fram til þrjú eftir vaktina og treð restinni ofan í kassa. Sem ég mun gera, af því ég ætla það. Ég ætla að faðma fjallshlíðina í Skíðadalnum svo lengi og vel að það verður far eftir mig í lynginu. Mikið verður það óskaplega notalegt. Jafnframt vandræðalegt þegar ég mæti niðreftir aftur eins og dalmantíuhundur í framan.
Á sunnudaginn ætla kjarnahjónin Tryggvi og Björg ásamt undurfagri dóttur sinni að ferja mig suður. Tómasarhaginn bíður mín eins fáránlega krúttlegur og hann er. Oooosssobyrjar skólinn á mánudaginn. Næseh.


<< Home