sunnudagur, nóvember 02, 2008


Svona rétt til að ýkja upp bragðið af sunnudags brönsinum



Mikið óskaplega sem maður er endurnærður eftir svona yndislega helgi. Hún innihélt allt það sem hollt þykir fyrir sálina og gott betur. Ég hitti svo fallegar listakonur og átti við þær gott spjall. Báðar voru þær gráhærðar og áttu það sameiginlegt að segja frá listinni sinni í litríkum orðum og tjá hana þannig að setningarnar trítluðu beina leið að brosandi hjarta. Fyndið hvað sumar manneskjur geta gert fyrir mann óafvitandi. Það er eins og þær komi í kaffi með bakkelsi með sér og myndist svo við að mála veggina í fallegri litum, gæða gardínurnar nýju lífi með tindrandi gullþráðum og bródera óþekktum ævintýrum í púðana í sófanum. Það skemmtilega við þetta fólk sem sem skilur eitthvað eftir sig er að það átti bara leið hjá. Önnur þeirra gerði reyndar eins og Hans vinur hennar Grétu. Hún rétti mér brauðmola svo ég þekkti hennar tegund og gæti hitt hana aftur á vinnustofunni hennar. Það leikur ekki nokkur vafi á því að þangað fer ég valhoppandi í rauðu pilsi með eplakinnar af eftirvæntingu.

Svo skemmir ekki heldur fyrir að eiga heimalinga á haganum sem kæta og bæta öllum stundum. Þær þræða handverkssýningar í ráðhúsinu með mér og ausa súpu á diskinn þegar ég er svöng. Þessar elskur. Ekkert nema forréttindi, meira að segja músarindlarnir eru með lifandi leikhús fyrir utan eldhúsgluggann, svona rétt til að ýkja upp bragðið af sunnudags brönsinum.