fimmtudagur, desember 04, 2008


Buskur og blessun

Það var eins og þær læsu mig. Buskurnar bestu. Allt sem ég þurfti á að halda var að hjálpa til við eitthvað sem lyktaði vel og smakkaðist betur. Gladdi góða og mýkti margan magann. Mér leið eins og ég fengi ósýnilegt faðmlag.

Svo birtist hann líka blessaður með kvöldroða í kinnum. Fékk ekkert nema smjer en var þó sæll með sitt. Færði mig í annan heim, bjartari og ljósari. Léttfætt bros læddist að vörum mér, svo þær stukku útað eyrum og dvöldu þar drykklanga stund.
Hann sagðist koma að norðan, en ég er handviss um að hann hafi dottið niður af lítilli stjörnu og óvart lent í fanginu á mér. Þvílík blessun.