föstudagur, desember 12, 2008


Hibb spaða Kibb

Klukkan hringdi fimm og ég var vöknuð. Eftir væran svefn. Punkteraður lagðist hausinn á koddann klukkan hálf níu í gær, með þreytta sál á herðum sér og gagnslausan líkama undir arminum. Keyrsla á keyrslu ofan og bíllinn botnaður. Stormur sem ber allt að utan og lægir ekki fyrr en ég kemst í faðminn þann sem geymir hann. Góði, besti.

En nú er ég vöknuð og þarf virkilega að halda á spöðunum fram til klukkan korter í fjögur. Svona! Hibb hibb! Kibbakibb!