fimmtudagur, desember 25, 2008

Jólin

Hér sit ég sprengisödd með glansandi litrík bréf fyrir framan mig og tóman kaffibolla. Settleg og fín með nýja ilmvatnslykt og ljúfar línur sem leika við hugann frá blaði í bók til stúlku í stól. Skissubók við hægrihönd og handavinnu við vinstri. Svo grípur maður í þetta eftir hentisemi.

Faðirinn í sófanum dæsir annað veifið og brosir makindalega útí annað. Vellíðan erum við vafin. Jólaboð um kaffileytið og brúðkaupsafmæli á morgun. Svo kemur hann líka fljótlega, pilturinn.

Mér fannst seint í gær eins og ég næði að staldra við, stoppa og hugsa hátt með hjartanu. Seilast eftir kjarna málsins. Friðsælu áminningunni. Mikið var það gott. Ein með sjálfri mér og öllu sem hefi ég undir þessari þarna bringu, fengið frá öðrum og föndrað sjálf.

Kærleiksstund og stund með gull í mund.

Frið-sæl skakklappaðist ég heim á leið með stuttri viðkomu í Byggðavegi 114. Jólakoss og ömmubros buðu góða nótt. Svo sveif ég upp Hamarstíginn og endaði í Löngumýri 20.

Allur þessi friður innandyra, innanskrokks.

Hann er svo ljómandi góður. "Hann er eins og samræmið í náttúrunni sem maður verður örsjaldan var við og aðeins ef tíminn stendur í stað. Hann er kyrrðin." Skrifaði Vigdís Grímsdóttir í Stúlkuna í Skóginum, og hitti mig í hjartastað.

Eins og sá sem lánaði mér bók móður sinnar og gaf mér fjöllin að gjöf í tilefni jóla.