mánudagur, janúar 12, 2009


Að rassa feitan bifur


Stundum heldur maður að takturinn sé fastur og maður sé á fullu skriði, þangað til einhver kemur og ýtir á rassinn á manni. Þá áttar maður sig um leið og maður splaffar á magann og framkallar einhver ótrúleg búkhljóð að maður kemst hraðar og getur meira og meira og meira og ennþá meira, fer lengra. Tveir fætur geta þurft eina hendi til að bifa feitum rassi. Ég er í dag þakklát fyrir raddir sem ná til eyrna minna. Hreyfingum sem læðast inn í meðvitund mína. Hraða sem heldur mér gangandi. Smáatriðum sem setjast án þess að ég taki eftir því. Stærðarhlutum sem stoppa og minna á sig. Hvernig ég hvorki anda á undan né á eftir tímanum heldur nýt þess að draga súrefnið ofan í mig og leyfa því að seytla um lungun eins og vætu um þurran jarðveg. Hlýjuna sem streymir um háloftin, láloftin, landið og til mín. Og daginn í dag.