sunnudagur, mars 22, 2009


Glugginn



Sem er alltaf opinn.
Álftirnar fyrir utan og hafið líka.

Stundum hangi ég hálf útum þennan glugga og undra mig á því hve heimurinn er mikið listaverk. Lungun gleðjast og augun dansa um himinn og haf. Oft langar mig að skríða útum hann og setjast á þakbrúnina. Draga hnén uppað brjóstum og smella einum léttum kossi á hægra hnéð, reka nefbroddinn ofan í það vinstra og spangóla svo eins og sléttuúlfur. Fara í splitt í þakrennunni og ímynda mér að ég búi í loftbelg.