mánudagur, mars 09, 2009


Diskbrúnar böl


Alltaf finnst mér það jafn góð hugmynd um fjögur og fimmleytið að leggja mig í 20 mínútur. Það hafa svo margir sagt að 20 mínútna svefn sé alveg killer næs power sprengja. Svo veifa þeir hendinni á móti kaffi og bretta upp á nefið. Ég á ekki að gera þetta. Ég fer alltaf í stærðfræði pakkann eftir daðurslegt viðmót mitt við þessa hugmynd. Smelli mér í "powernap" og ákveð að vakna 20 mínútum seinna fersk eins og gúrka. Svo þegar ég loksins vakna sósuð eins og sveppasafi þrem tímum seinna þá sé ég að ég hef hlaupið á mig og margfaldað ómeðvitað 20 með 9. Kannski er þetta mín útrás í að fá stærðfræðigenunum fullnægt. Ekki reikna ég mikið svona frá mánudegi til sunnudags. Kannski er ég bara nautnaskunkur sem strýkur sjálfum sér á vangann og segir.. svoooona svooona, sofðu baaaara lengur. Það er svo notalegt. Erfitt að meta svona hendingar.

Meðfram stafainnstimpun er ég að fá matarnautn minni fullnægt. Afgangur af hryggnum sem við elduðum í gærkvöldi fer í þessum skrifuðu orðum, kollhnísa í munni mínum. Trausti kom og var um helgina. Hann tók með sér pensla dýrðar og dásemdar og vandaði sig við að mála með mér ósýnilega andans mynd alla heilu helgina. Við sáum Alfreð Flóka á Listasafni Reykjavíkur. Töff stöff. Kallinn var stórmerkilegur og mikill maður listar. Hann gerði mann bæði undrandi, hrærðan og hneykslaðan í senn. Svo vakti hann einnig hrifningu mína.

Ég gef rás tvö þumalinn og loft fæf fyrir lagaval klukkan korter í átta. Allahamalla! Emilíana og Björk gera matinn betri.

Annars hefði ég þurft að hafa bundinn kött við brauðið mitt áðan. Því eins og sannast hefur, þá lenda þeir alltaf á löppunum. Brauð hinsvegar með smjéri sem hrasar fram af diskbrún og í klof, lendir alltaf á hvolfi. Því hefði verið dásamlegt ef ég hefði verið að borða brauðið, sem stimplaði fitublettum á skyrtuna mína, af baki kattar. Því ef hann hefði hrasað af diskbrún í klof hefði brauðið ekki brussast svona eins og hörmungarhró.

Eftir þriggja tíma powernap og kjarngóðan kvöldmat ætti ég að geta afkastað eins og kúlukastari í kvöld. Ég og Yves Klein þurfum að spjalla aðeins saman um nouveau réalisme.

Húrra!