Upp og ofan
Í dag: Gekk ég frá Hlemmi og niður á Sölvhól. Á leið minni gekk ég fram á gamlan mann, hokinn var hann og grár. Að honum veittist útlendingur í gríðarlegum æsingi og tilkynnti með miklum ofsa á ensku að hann hafi verið hjá lækni og það hafi blætt. Gamli maðurinn spurði á íslensku eftir að hafa starað á hann opinnmynntur í drykklanga stund, hvort hann hafi sofið yfir sig. Þótti mér mikið til senunar koma þar sem íslenskt samfélag birtist mér þarna í hnotskurn svona rétt í morgunsárið. Um hádegi fékk ég hugmynd af gjörningi sem gaman væri að framkvæma, algjörlega ótengt hendingum morgunsins. Svo borðaði ég olíuborið pasta sem þóttist betra fyrir vikið en var það ekki. Fór í ferðalag uppí Grafarholt, sem gæti alveg eins verið í útlöndum. Og nú bíbbar Sólveig Ása fyrir utan, bráðum hringir hún því ég er að klára að skrifa þetta.
Í kvöld: Á að elda lasagne hjá Guðrúnu. Af því að Anítu langaði svo óskaplega í hakk.

<< Home