þriðjudagur, febrúar 10, 2009



Brauð í bítið

Það er innvortis vor í lofti og útvortis febrúar sól sem kitlar innvolsið og sérlega þetta rauða. Það ýmist hamast og hamast eða er svo taktfast og yfirvegað. Ég tók nokkrar myndir útum gluggan á strætó í tilefni af því í gær.

Í gær fékk ég mér pensil í hönd og grunnaði "striga". Ég veit ekkert hvað kemur til með að setjast á þennan grunn. Það gerir að verkum að næstu vikur verða óskaplega spennandi. Ég kom mér fyrir þannig að andlitið sneri út að glugganum breiða og setti upp trönur. Svo sofnaði ég í listasögu eftir hádegi og leið eins og ég væri unglingstrippi enn á ný.

Dagurinn lokaði hljóðlega á eftir sér með yndælis silungsmáltíð á Eggertsgötunni hjá Guðrúnu og maginn sigldi sæll inn í kærkominn svefn.

Nú er klukkan 7, brauðið er tilbúið í ofnunum og blóðsykurinn er farinn að kalla á að ég setji eitthvað í skoltinn.

Ég er voðalega forvitin um framhald þessa dags.