þriðjudagur, janúar 27, 2009

Rautt nef og frosið regn

Í fönninni þunnu, endurspeglast eldhnötturinn og tilveran glitrar allt í kring.

Helst vildi ég fljúga um á loftkenndu skýji, gegnsæju og góna óáreitt á sjálfa mig þar sem ég geng um með rautt nef. Rautt nef sem þykist stundum vísa veginn. Heldur að það sé hæst sett þegar það tekur á sig sama lit og slagverkið duglega sem aldrei lúrir. Svona svona, segir Garðar. Hans nef er rautt alla daga ársins og því þekkir hann ekki annað.

Ég er að komast að því hægt og rólega að ég veit ósjaldan betur en þessi yfirlætislegi álfur.