föstudagur, janúar 30, 2009


Bróðir minn er grænn eins og Hulk



..og hann er líka stærstur í heiminum, hann er fimm kílómetrar. Sagði þessi litli stúfur um leið og hann fullyrti að hann ætlaði að borða hrísgrjón þegar hann er orðinn gamall og hlaupa tíu kílómetra í spidermanbúningi. Við hittum hann á förnum vegi, ég og nokkrir krakkar úr skólanum. Tókum hann tali og hann laug okkur full. Það er það sem þau gera á þessum aldri, ljúga eins mikið og þau geta. Það er svo stórkostlegt, og svo skein vissan úr augunum á honum um það að við tryðum hverju orði. Meistari var hann mikill.

Ég tók að mér í lok viku að vera úrhrak. Fórnfýsin er gífurleg. Hausinn fylltist af hori og Gullfoss dynur ofan í Gustavsbergið. Fallegt? Neinei. Mér er ekkert um þetta hlutverk gefið og ætla að koma mér undan því hið snarasta. Sólveig elskan ætlar að elda ofan í mig eitthvað góðgæti á eftir og hafa ofan af fyrir mér. Svo ætla ég að vera hætt þessu í fyrramálið og ekki stundinni síðar.