föstudagur, mars 06, 2009


Rýmið er rúm


Birtan sem skín innum kvistgluggana á Haganum þessa morgnana og litirnir sem spila með henni eru óska morgunverður hverrar súðarstúlku. Umhverfið er svo ægifagurt að súrefnið sem maður dregur ofan í lungu fær nýtt gildi. Maður fer umsvifalaust í augnatangó og tekur jafnvel uppá tvisti svona rétt um eða uppúr hádegi. Síðdegis gangan við sjóinn sest mjúklega í mann og heldur manni félagsskap langt fram eftir kvöldi. Lukkan að líta út um gluggann hvenær dags sem er og sjá þetta feiknar stóra og víðáttu mikla haf fyrir augum sér. Hvort heldur sem er í tungls eða sólarljósi. Meistari málverksins, sem aldrei sefur, að sinna sínu starfi. Náttúrutengingin er svo sterk og svo góð og svo auðmýkjandi. Að mega njóta. Þakklætið vefur sér þétt um mig.

Það er þetta sem liggur mest á mér í dag. Kannski af því að veðrið hefur verið svo gott síðustu daga og ég er farin að taka eftir því hvað sólin er orðin árrisul. Það setur sippuband í magann á mér og ég stenst ekki tilhlökkunina. Það styttist í vor og sumar. Kjól og rautt hjól. Fjöll og vötn og veiði. Bjartar nætur. Grasgrænku á hnjám og ilminn af nýslegnu grasi. Grilllykt og sundferðir. Tjaldið og hrossagaukinn. Akureyri og Trausta.

Dagurinn var fagur og kvöldið var notalegt. Álftanesið kallaði og ég kom. Lilja og Bjarni svo yndisleg að bjóða heim í mat og hyggelighed. Heimsmálin, samfélagsmálin, söngmálin og listin, hegðun, atferli, framkoma, jón gnarr og örn árna, mennta- og landsbyggðamál.. allt bar á góma. Svo var það ekki til að skemma fyrir þegar Bjarni tók upp gítarinn og þau buttu slaufu á kvöldið með ljúfum söng sínum.

Að vera í rými.

Eða vera í rúmi.

Rúmið er rými og rýmið er rúm.

Nóttin er komin og mín bíður ljúfur blundur.

Ég elska að sofna í harðangurssængurverinu frá ömmu. Það er á einhvern sérstakan máta hlýlegra en önnur sængurver.

Góða nótt í nótt og góðan dag á morgun.