þriðjudagur, mars 17, 2009

Auglit

Ég andskotaðist í vindinum við sjóinn og sjórinn frussaði á mig. Ég reyndi árangurslaust að frussa til baka, náttúran sigraði minn innri dólg og ég þurfti að lúta í lægra haldi. Greip það ráð að frussa með handakrikunum þar sem ég hljóp og svitnaði meðfram sjávarsíðunni. Útrás mikil. Dauðþreytt og farin að finna fyrir lærvöðvum þarna undir öllusaman gekk upp tröppurnar og hló að frussandi freðnaglanum sem hélt hann gæti sigrað hafið. Það gerir enginn. Einungis sólin getur myndað svo gott samband við hafið að það fellur í stafi við auglit hennar eitt. Úfið haf verður tindrandi og lygnt haf verður gyllt. Sær og sól. Hafsól. Jafnvægi. Himinn og jörð.