föstudagur, mars 20, 2009


Veggverk/Málverk

Á laugardaginn klukkan 16. opnar sýningin Skyssur í Nemenda Gallerýinu Kaffistofa á Hverfisgötu (hliðina á Kling og Bang). Þar verða til sýnis ýmsar skissur nokkura nemenda Listaháskólans. Það væri gaman að sjá sem flesta.






Ég fór í gær og setti upp mína skissu. Ákvað að stækka hana upp á vegg og gera að veggverki. Þessi skissa varð til þegar ég var í málverkskúrsinum góða. Ég leitaði á náðir Alex Katz í sambandi við andlit, tóna og skyggingu. Hann er afar fær og því þótti mér við hæfi að þakka honum hljóðlega með því að draga niður mynd af okkur saman. Við erum útí horni.