mánudagur, mars 30, 2009


Mánudagsmorgun og ég vaknaði svo vel.


Helgin var hreint ótrúlega frábær.

Mér líður eins og ég sé að ganga upp glerturn sem ætlar aldrei að enda. Hann hækkar og hækkar og útsýnið verður fallegra og fallegra.

Trausti kom á föstudagskvöldið. Ég gekk útá flugvöll til þess að bíða hans brosandi með faðminn útbreiddann. Á leið minni átti ég von á að sjá flugvélina gæjast í gegnum skýjinn á hverri stundu fyrir ofan Ægissíðuna en allt kom fyrir ekki. Ég leit stöðugt við og skildi ekki hvernig á þessu stóð, þær voru vanar að koma með hann úr þessari átt. Það var ekki fyrr en ég var alveg að koma að flugvallarbyggingunni að vélin kom beint í flasið á mér hinumeginn frá. Hún var framundan.

Við áttum innilaugardag án þess að fara í sund.. ég meina að við vorum inni allan laugardaginn en ekki í innilauginni allan daginn (slæmtgrínrassskellurandskotansái). Elmar kom til morgunverðar, þvílík gleði og mikill gangur. Ég bakaði skonsur og Jói Fel bakaði brauð. Ég gerði heimapróf í listasögu og andskotaðist yfir því að þurfa að gera það. Trausti var fáránlega myndarlegur í eldhúsinu og gott ef ekki hvar svo sem hann drap niður fæti eða rassi. Hann bakaði brauð og við elduðum lax og grænmeti. Átum og drukkum hvítt glundur með.

Sunnudagur. Dagur sólar með rentu. Sérdeilis brosmild bongóblíða sem var með okkur í gær. Við gengum útá Gróttu, snertum vitann sem allir taka mynd af. Horfðum á hafið sperra sig og berja klettana eins og hangandi harðfisk. Guð hvað þetta var fallegur dagur. Við tíndum skeljar og kuðunga og Trausti fann lifandi krabba sem var svo óskaplega sætur en samt svolítið hræddur. Fórum í leynifótabað í fjörunni og gengum um leynistíga í hverfinu. Blaut í fæturna komum við heim, Trausti þeytti rjóma og ég bakaði pönnukökur. Um kvöldið bökuðum við eðal pítsu og fengum einlægni að gjöf frá góðu fólki. Mér þykir svo vænt um sunnudaga, og mér þykir alveg sérdeilis vænt um þennan sunnudag.

Í gegnum skráargatið sé ég allt í ljóma.

Pabbi kemur á miðvikudaginn, það verður gott að faðma þann gamla.

Fríið kemur á föstudaginn og stoppar í heila 10 daga.
Það verður best.