þriðjudagur, apríl 14, 2009


Anda að mér augunum með sumrinu


Ég lenti í höfuðborginni um miðjan daginn, útötuð í lopa eftir prjónaskapinn á leiðinni og byrjaði á því að snýta hálfu kílói af hori. Páskafríið var dásamlegt. Örlítið lengra en ein helgi með tilheyrandi trega á sunnudegi. Við áttum svo góða daga fulla af gæða stundum, með góðu fólki. Gerðum pestó og páskaegg, karamellur og elduðum fyrir og með yndislegu fólki. Fórum í hátíðar mat til mömmu og áttum yndislegar stundir með þeim gömlu. Sveitaloftið rataði ofan í lungu og væntumþykjan var umlykjandi allstaðar. Ég er hálf bleik inní mér af tilhugsuninni um allt þetta öðlingsfólk sem stendur í kringum mig og myndar lífsins lofsemdar munstur. Mikið er ég heppin.

Rigningin lak hálf letilega niður úr skýjunum þegar ég lenti í henni Reykjavík og gerir enn, leitast við að teikna óreglulegar myndir á eldhúsgluggana á Tómasarhaganum. Bergþóra mín kom á rauða tryllirnum og náði í mig á völlinn. Við keyrðum þessa ótrúlegu vegalengd heim í hagann og upplifðum okkur vera á ógnarhraða í þann veg að sigra rallýkappakstur. Án þess þó að vera ólöglegar. Það var bara hávaðinn sem var slíkur og þvílíkur því Vestfjarðarferðin og óprúttinn malarvegur rændi hana hljóðkútnum.

Kristjana mín á hæðinni fyrir neðan spilar á píanóið og ég lep kaffið eins og köttur. Snýst pínulítið og ósköp rólega einhvernveginn inní mér af tilhlökkun. Yfirvegaðri tilhlökkun. Ég ætla að grafa upp gula kjólinn á eftir og anda að mér sumrinu með augunum.