Sveitasæla, hornös, og hænur
Við vorum rétt í þessu að renna í bæinn. Eftir dásemdar dvöl í Reykjadalnum. Kindurnar báðu að heilsa öllum og hænurnar líka. Snjórinn lét sig ekki vanta í sveitina og gerði það að verkum að við gátum þeyst upp um heiðina fögru og þar var ég kynnt fyrir kynlegum kvistum, Skollhólar og Refasteinn, Hvítafell og snæfiþakinn kofi karlsins buðu mig velkomna og sólin spjallaði blíðlega við skýjin á meðan. Á þeytingi með gull á himnum fyrir ofan höfuð. Það þykir mér þakið besta. Verst var það með horið sem á mig herjaði af miklum hamagangi, en best með borðið sem bóndinn smeið. Herlegheitarhorið orsakaði inniveru sem hafði reyndar ýmislegt skemmtilegt í för með sér. Ég prjónaði eins og vindurinn milli pönnukökusteikinga, skartgripagerðar, bollubaksturs og kartöfluföndurs. Lena litla var með pest líka þannig að við gátum haft ofan af fyrir hver annarri. Ekki þurfti maður að svelta, nei ó nei sei sei, því selir voru á borðum annað kvöldið og dýrindis lambahryggur hitt kvöldið.
Fjárhúsið er eins og hin mesta fjársjóðskista í ævintýraheimi. Hlaðan er hlaðin gulli og hænsnakofinn kurrar og gaggar, gott ef hann vaggar ekki og hreyfist svolítið.
Við tekur áframhaldandi sæla þó ekki í sveit.


<< Home