fimmtudagur, apríl 23, 2009


Humar

Ég opnaði augun í morgun og leit að glugganum. Hann geymdi bláan himinn, fugla og flugvélar. Tærnar gægðust undan sænginni og munnvikin lyftust um leið og ég teygði hendurnar uppfyrir hvirfilinn og öskurgeyspaði. Sumardagurinn fyrsti læddist inn þegar ég opnaði gluggan og hvíslaði loforði um fallegt og gott sumar í eyrað á mér.

Mamma og pabbi eru í bænum og ég bíð þess að þau vakni af værum blundi. Hlakka til að renna til Njarðvíkur og heilsa uppá afa, sjá sýninguna hennar Heklu og kíkja á opnun á Kaffistofu. Hlakka óskaplega til að fara norður á morgun, og enn meira til að vera komin þangað.

Mig dreymdi í nótt að ég væri að elta fjöldan allan af humrum útum allar tryssur og reyna að troða þeim ofan í poka. En þeir skriðu alltaf uppúr aftur sama hvað ég varð pirruð og skammaðist. Kannski það sé verið að ávíta mig fyrir græðgi og taugastrekking.

Gleðilegt sumar