fimmtudagur, ágúst 13, 2009


Lítil gömul kona sem..

Um daginn fékk ég bólu á puttann. Hún var ill viðureignar og afar ljót. Beisk jafnvel. Sem betur fer á ég góða að og sumir þeirra búa í Hrísey, þessir tilteknu góðu. Þeir gáfu mér Joð á bóluna og lét hún sig hverfa á augabragði. Þetta voru hin góði kynni mín af joði. Í morgun lærði ég aftur að Jóðla.. það, er töff stöff. Maður segir bara Little old lady who geðveikt hratt og frekar falskt og maður er eins og alpagaur með geit á öxlunum. Kemur sér oft vel að horfa á Opru.

Tíminn líður ógnarhratt. Það eru ekki nema örfáir vinnudagar eftir af sumrinu og skólinn bíður eins og stilltur skáti handan við hornið. Ég hlakka svo hroðalega til að stíga þar innfyrir dyr aftur og hefjast handa við ævintýrasköpun í efni. Mallamallamó. Ekki verður leiðinlegra að tína trjágreinar í hreiðrið og skreyta með þeim veggina. Gera kotið notalegt og geta vippað sér í kaffi til vinalegra kvenna sem verða þarna allt í kringum Laugarveginn okkar. Tína bláber og sulta. Sulla og malla eitthvað gott með góðum gauk í stærra rými en rostungsrassi. Það verður forvitnilegt að sjá hvernig Ugla litla, þessi myndarmóðir sómir sér innandyra.. og jafnvel enn forvitnilegra hvernig hundurinn hennar Sunnu frænku tekur henni.

Ég hef komist að því að það kemur sér vel að koma í kemíska snjókomu. Nei ég meina, að eiga pabba sem þekkir alla Akureyri og gott betur getur íkornatetur.. nei nú er rímnaveikin búin að ná tökum á mér.. getur komið sér ansi ári býsna vel. Hann stendur í ströngu karlinn við það að útvega okkur kerru til þess að flytja búslóðina landshorna á milli. Það kæmi mér ekki á óvart ef það stæði 10 hesta hestakerra fyrir utan hjá okkur á sunnudagsmorguninn, hjólhýsi, snjósleðadrellir eða fimm metra flutningabíll! Best væri ef það yrði hestakerran, hún gæti haft yndælisilm í för með sér og við gætum keypt okkur prikhesta, lokað augunum og fundist við vera ríðandi um fjöll og fyrnindi.. tveir þrír hárblásarar fyrir framan mann og svolítið af froðuplastkúlum og við værum stödd í stormi, jóðlandi jafnvel, á brokki upp hálendið.

Ekki er nú móðir mín af verri endanum. Elsku húsamúsin kappmellaði hnappagöt í höndunum. Þvoði og strekti prjónaðar og heklaðar, kniplaðar og saumaðar dúllur og var mér í allastaði dygg aðstoð í sköpunargleði minni um daginn. Ég tók mig til og gerði nokkra gjafapúða fyrir nýbakaðar mæður sem ætla að mjólka duglega. Þeir eru hvítir og hreinlegir, úr lífrænni bómull með ísaumuðu fallegu gamaldags handverki. Auðveldir að þvo og að þeim er lítil sem engin sjónmengun þó þeir séu hafðir í stofunni svo dögum skipti. Þeir eru til sölu á 6000 krónur stykkið og fást afhentir í eigin persónu.

Nú þykir mér vera kominn tími á sófaflutninga fyrir gamlar konur.