miðvikudagur, október 21, 2009


Ljóð

Ég fann þetta ljóð í fórum mínum, ég skrifaði það fyrir tæpu ári síðan og man ekkert af hvaða tilefni. Ég held reyndar ef mig misminnir ekki að þetta séu tvö ljóð. Best að hafa það þannig. Þau kveiktu eitthvað nýtt hjá mér í dag og mig langaði til að setja það á síðuna sem ég hef vanrækt svo illilega.


#1

Hver býr bakvið brosið?

Býr hann vel, og sefur?
Matast mátulega og gefur?
Lofar hverja stund,
svo streymir gull í hans mund?

Eða minnir hann á úldinn hund?


#2

Skammt þá teymir strangur þrótt.
Spyr ey hvað þá heilsar,
stynur stúfur,
skrikar fót.
Fellur flatur,
um möl en ekki grjót.