miðvikudagur, október 21, 2009


September og október

- myndir -


Myndlistardeildin fór í hina árlegu haustlitaferð um miðjan september. Það var mikil rómantík í umhverfinu og ég var himinsæl með að fara á Þingvelli í fyrsta sinn. Hildur skartaði sínu fegursta á meðan Líndal lögfræðingur sagði okkur frá fornum tímum.


Sindri umlukinn rómantík og kátur eftir því. Dísa reimaði skóna sína.



Himininn breyddi sængina yfir landið og pissaði smá undir. En engum varð meint.



Við Trausti eigum Bergþóru að þakka hamingjuna sem fylgdi hátíðlegri norðanför í lok september. Ég gisti eina nótt í Hrísey, knúsaði Jón, purraði Snæ og prjónaði með elsku Helgu og elsku Bergþóru, elskelsk. Við drukkum te og fórum á trúnó. Helga eldaði fáránlega góða sveppasúpu úr Hríseyskum villisveppum með keim af kókos og mikilli ást.


Frostið lék sér á bláþræði


Við görpuðumst uppí heiði á sunnudegi og smöluðum kjöti niður á tún og inní hús. Reykjadalurinn var ægifagur og heimilislegur.



Halli og Íshildur komu í heimsókn og við Íshildur lögðumst í skartgripa og kórónugerð. Svo fórum við í Kolaportið prúðbúnar og sunnudagssætar. Íshildur var eina prinsessan í Kolaportinu. Allavega sú eina sem keypti hákarl.



Anna litla sem heitir núna Lísa er besta vinkona Íshildar.



Elsku ljósálfurinn minn kom í heimsókn, við gáfum henni kebab og töluðum um heima og geima. Ég elska matarborðsmyndir. Ég elska Brynju og ég elska Trausta. Ég hata kústsköft.


Bræður mínir sofa á skrifborðinu og kapteinn grænfugl vakir yfir þeim ásamt öllum sínum draugum.



Trausti elsklingur langaði á fjöll en var lasinn.



Tröllabollinn hans Trausta og hlýja peysan sem er alveg að verða tilbúin. Kaffið úr bollanum renndi sér ofan í mig og settist í magann. En bara í smástund.



Bróðir String-Emils kíkti við og fékk þrjú stig af fimm fyrir mústasið.



Bráðum kemur nóvember, með blóm í hag'og bleikar kýr sem dansa, fram á nótt.

Takk og túkallatríó.